Velkomin á Klíníkina

Þarftu hjálp við þyngdarstjórnun?

Einstaklingur með offitu getur verið heilbrigður og án sjúkdóma en því meiri sem offitan er aukast líkurnar á að viðkomandi þrói með sér alvarlega fylgisjúkdóma líkt og háþrýsting, sykursýki og kæfisvefn. Langflestir sem lifa við offitu hafa reynt að breyta um lífsstíl en oftar en ekki koma kílóin tvíefld tilbaka. Offita er krónískur sjúkdómur og meðferðin er alltaf ævilöng. Gott mataræði og reglubundin hreyfing er alltaf grunnurinn að góðri heilsu fyrir alla óháð þyngd.  Hægt er að flýta fyrir bata (ekki lækningu) með samtalsmeðferð og ráðgjöf, lyfjagjöf og efnaskiptaaðgerðum.

Ekki hika við að heyra í okkur ef þig vantar aðstoð til að ákvarða næstu skref fyrir betri heilsu.

Hvernig getum við hjálpað?

Ráðgjöf og ​stuðningur

Þarftu að koma þér af stað, undirbúa þig fyrir ​aðgerð og/eða fá hjálp við lífsstílsbreytingar? Hér færðu þann stuðning sem þú þarft til að ​koma þér af stað og gera góðar og varanlegar ​breytingar fyrir lífsstíð.

Lyfjameðferð

Mikil þróun hefur verið á lyfjum sem stuðla að þyngdartapi með því að hafa áhrif á svengdar og seddukerfi líkamans. Nú getur þú bókað tíma hjá lækni til að sjá hvort meðferðin henti fyrir þig.

Efnaskiptaaðgerðir

Efnaskiptaaðgerð er árangursríkasta leiðin til að draga úr offitu. Á Klíníkinni er mikil reynsla af slíkum aðgerðum. Þú getur bókað viðtal hjá lækni til að kanna hvort aðgerð geti hentað þér.

Það eru til lausnir

Meðferð við ofþyngd og offitu

Lífsstílsbreytingar eru nauðsynlegar fyrir alla sem þurfa að létta sig og til þess að viðhalda árangri, sama hvaða leið er valin til þess að léttast eða koma í veg fyrir þyngdaraukningu. Stundum getur verið nóg að fá aðstoð til þess að breyta um lífsstíl með viðtölum, næringarfræðslu og hreyfingu. Aðrir og oftast þeir sem eru komnir með offitu (BMI >30) þurfa meiri stuðning og jafnvel inngrip með lyfjum eða skurðaðgerð til þess að ná þyngdinni niður til langframa. Það er jafnframt mikilvægt að muna að offita er krónískur sjúkdómur sem þarf að vinna með alla ævi líka ef farið er í efnaskiptaaðgerð. 

Reynslusögur

Umsagnir frá skjólstæðingum okkar

Ég er búinn að léttast um 94kg síðan ég fór í aðgerðina. Ég sef á næturnar, þarf ekki að leggja mig yfir daginn og allar hreyfingar og daglegt amstur er orðinn svo yndislega áreynslulaust. Uppfullur og orku og líður eins og að ég hafi yngst um 10 ár.

Jóhann Ólafur​ Hjáveita

Ég þarf mun minni svefn en áður, er miklu orkumeiri, tek þátt í öllu sem fjölskyldan mín tekur sér fyrir hendur í útivist, leik og starfi. Til viðbótar er ég laus við blóðþrýstingslyfin, ég þarfnast þeirra ekki lengur! Ég lít á aðgerðina mína sem verkfæri og tækifæri sem ég var svo lánsöm að fá að njóta til að öðlast betri lífsgæði. Ég ætla mér sannarlega að fara vel með þetta tækifæri.

xxx Magaermi

Ég er alsæll og þetta er besta ákvörðun lífs míns.

Ingólfur G Magaermi

    Fræðsla og fréttir

    Fræðsluefni

    Megrunarkúrar virka ekki!

    Megrunarkúrar virka ekki!

    Mikill þrýstingur er í samfélaginu um að halda sér grönnum…

    Lýtaaðgerðir eftir mikið þyngdartap

    Lýtaaðgerðir eftir mikið þyngdartap

    Margir fá nýtt líf eftir efnaskiptaaðgerð en líka ný vandamál,…

    Samtök fólks með offitu (SFO)

    Samtök fólks með offitu (SFO)

    SFO, samtök fólks með offitu og aðstandendur þeirra var stofnað…

    Afhverju að velja klínikina?

    Reynsla, hæfni og góð aðstaða

    Aðalsteinn Arnarson

    Kviðarholsskurðlæknir

    “Við viljum bestu mögulegu lífsgæði fyrir þig”

    Klíníkin hefur innan sinna raða sérfræðinga í fremstu röð á sviði lækninga auk þess að vera með fullkomnar skurðstofur og veita frammúrskarandi þjónustu við skjólstæðinga sína. Hjá okkur ertu alltaf í fyrsta sæti.

    FAGMENNSKA

    Skjólstæðingar og samstarfsfólk getur treyst á fagmennsku á öllum sviðum í Klíníkinni Ármúla.

    HLÝLEIKI

    ​​Við sýnum skjólstæðingum og samstarfsfólki hlýleika í öllum okkar samskiptum.

    ELDMÓÐUR

    Við erum lausnamiðuð og jákvæð gagnvart viðskiptavinum og samstarfsfólki og sinnum okkar starfi af eldmóði.

    TRAUST

    Skjólstæðingar og starfsfólk getur treyst á þagmælsku og heiðarleika í öllum okkar samskiptum.